„Að þau öðlist skilning er aðalatriðið, til þess erum við að þessu“ : hugmyndir og reynsla nokkurra kennara á miðstigi grunnskóla af kennslubókum í náttúrufræði ; “It’s essential that they understand” : the experiences of middle-school teachers with using textbooks in teaching the natural sciences
2019
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Viðfangsefni þessarar rannsóknar var að athuga hugmyndir og reynslu nokkurra kennara á miðstigi grunnskóla af kennslubókum í náttúrufræði. Markmiðið var að auka þekkingu á því hvernig þessir kennarar nota kennslubækur í náttúrufræði, það er á hvaða hátt og hvers vegna. Kannað var hvaða kennslubækur kennararnir notuðu í kennslu sinni og hvaða kosti og galla þeir sáu á þeim. Eigindlegum aðferðum var beitt í rannsókninni þar sem fylgst var með kennslustundum í náttúrufræði hjá sex kennurum og tekin opin hálfstöðluð einstaklingsviðtöl við þá. Valdir voru kennarar sem höfðu ólíkan bakgrunn og menntun og voru líklegir til að nota kennslubækur með mismunandi hætti. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að kennararnir hjálpuðu nemendum að öðlast áþreifanlega reynslu af viðfangsefnum kennslubókanna meðal annars með verklegum athugunum. Kennararnir sögðust gjarnan finna tillögur að verklegum athugunum í kennslubókum, verkefnaheftum og á Netinu. Þeir notuðu umræður til að hjálpa nemendum að draga merkinguna út úr textanum. Kennararnir höfðu ólíka sýn á hlutverk kennslubókanna, hvernig þeir notuðu kennslubækurnar á fjölbreyttan hátt og hvernig þær studdu þá í kennslu sinni. Útgefnar kennslubækur frá Menntamálastofnun voru notaðar: Auðvitað bókaflokkurinn, Líf á landi, Lífríki í sjó, Líf í fersku vatni og Maðurinn: hugur og heilsa. Kennararnir tóku ekki ákvörðun sjálfir hvaða bækur ætti að kenna en völdu úr efninu og lögðu auk þess til annað kennsluefni. Kennararnir voru almennt ánægðir með bókaflokkinn Auðvitað. Að mati kennaranna voru bækurnar skemmtilegar og fjölbreyttar, textinn viðráðanlegur og efni þeirra og myndir tengdust daglegu lífi nemenda. Bækurnar hvöttu til umræðna og gáfu hugmyndir að verklegum athugunum. Flókinn orðaforði gerði sumum kennurum erfitt fyrir. Oftast voru kennararnir óánægðir með kennslubókina Líf á landi og sögðu textann vera langan og erfiðan. Bókin væri gamaldags, þurr og leiðinleg. Myndskreytingar voru nefndar sem helsti kostur bókarinnar. Textarnar sem unnið var með í ...
Titel: |
„Að þau öðlist skilning er aðalatriðið, til þess erum við að þessu“ : hugmyndir og reynsla nokkurra kennara á miðstigi grunnskóla af kennslubókum í náttúrufræði ; “It’s essential that they understand” : the experiences of middle-school teachers with using textbooks in teaching the natural sciences
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Halldóra Snorradóttir 1992- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2019 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|