Hin óljósu ábyrgðarskil ríkis og sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki
2023
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Starfsemi sveitarfélaga spilar stórt hlutverk í daglegu lífi fólks á Íslandi. Sveitarfélög veita að stórum hluta opinbera þjónustu sem hefur aukist mikið á undanförnum árum. Viðamikil verkefni hafa verið færð frá ríkinu yfir til sveitarfélaga og bendir ekkert til þess að lát sé á því. Árið 2011 voru málefni fatlaðs fólks flutt frá ríki til sveitarfélaga. Gráu svæðin í opinberri þjónustu myndast almennt í kjölfar á misfellu í verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og fjármögnun verkefna. Markmið ritgerðarinnar er að greina þessi gráu svæði löggjafarinnar hvað varðar ábyrgð ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að málefnum fatlaðs fólks. Sérstöku ljósi er varpað á málefni er varðar félagslega þjónustu og heimahjúkrun, þjónustuþörf í NPA og ungt fólk á heimilum ætluðum öldruðum. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að lagaleg réttindi fatlaðs fólks eru vel tryggð samkvæmt íslenskum lögum, hins vegar er framfylgd þessara sömu laga verulega ábótavant. Hvergi kemur fram í lögum að sveitarfélögum sé skylt að veita heilbrigðisþjónustu og af löggjöfinni einni er óljóst hver nákvæmlega ber ábyrgð á því að veita heilbrigðisþjónustu. Í reynd ber ríkið ábyrgðina því kjarni gráa svæðisins sem hér um ræðir lítur að því að sveitarfélög telja sér ekki heimilt að veita heilbrigðisþjónustu, þar sem það verkefni er falið ríkinu til úrlausnar samkvæmt lögum. Niðurstöður ritgerðarinnar benda því til þess að um kerfislægan vanda sé að ræða þar sem algengt er að þjónustuveitendur vísi ábyrgð á hvern annan og vinni ekki nægilega vel saman. Þá er einnig sýnt fram á að dómstólar telja löggjafann vera búinn að uppfylla sínar skyldur með því að tryggja þessi réttindi með lögum. Dómstólar fara ekki í það að meta efnislega hvort réttindi fatlaðs fólks séu tryggð í reynd. ; Municipalities play a significant role in the daily lives of people in Iceland. They provide a large portion of public services, which have increased greatly in recent years. Extensive projects have been transferred from the state to municipalities, and there is no doubt about ...
Titel: |
Hin óljósu ábyrgðarskil ríkis og sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Iðunn Berta Magnúsdóttir 1996- ; Háskólinn í Reykjavík |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2023 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|