Er ég jafnmikils virði og áður? Upplifun fólks á eigin líðan eftir krabbameinsgreiningu og í tengslum við að koma aftur til vinnu eftir greiningu ; Am I worth as much as before? People's experience and well-being following cancer diagnosis and when returning to work
In: ftskemman, 2018
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Útdráttur Krabbameinsgreindum einstaklingum fjölgar og eftir því sem meðferðum fleygir fram þá lifa fleiri eftir meðferðir en um helmingur er undir 65 ára aldri. Vinna er stór hluti af lífi fólks og mikill tími af daglegu lífi er varið á vinnustað. Vinnuumhverfið hefur áhrif á upplifun, iðju, samskipti, heilsu, hamingju og velferð einstaklinga. Þótt rannsóknum fjölgi með árunum þá hefur minni áhersla verið lögð á að skilja áhrif krabbameins á daglegt starf, vinnufærni og atvinnu. Viðfangsefni þessa verkefnis er að skoða hver upplifun fólks er af því að koma aftur til vinnu eftir krabbameinsmeðferð með hliðsjón af afleiðingum sjúkdómsmeðferðar, stuðningi vegna sjúkdómsins og þess vinnuumhverfis sem það býr við. Engin íslensk rannsókn er til um efnið og er það því verðugt rannsóknarefni. Gerð var eigindleg rannsókn með viðtölum við fjórar konur og fjóra karlmenn, á aldrinum 36-66 ára, sem höfðu fengið krabbamein. Markmiðið var að gefa þátttakendum tækifæri til að tjá eigin upplifun og reynslu og varpa þannig ljósi á aðstæður í persónulega lífi þeirra eftir greiningu og meðferð. Skoða hvaða stuðning þau höfðu fengið vegna fylgikvilla meðferða og hvernig vinnuumhverfið var þegar þau snéru aftur til vinnu. Niðurstöður benda til þess að miklar breytingar hafi orðið á lífi allra þátttakenda eftir greiningu og meðferð sem höfðu í för með sér skert lífsgæði í daglegri iðju, í tómstundum sem og í vinnu. Niðurstöður eru settar fram í þrjú meginþemu sem varpa ljósi á reynslu og viðhorf þátttakenda: 1) Lífið eftir greiningu sem vísar til upplifunar á eigin líðan eftir greiningu. 2) Endurhæfing og stuðningur sem vísar til þeirrar virkni sem þau tóku þátt í og þeim stuðningi sem þau fengu eftir greiningu. 3) Hin vinnandi vera sem vísar í aðstæður á vinnustað, hæfni í vinnu, skilning og samhug, traust, hlustun, líðan, fræðslu, upplýsingagjöf og framtíðarsýn. Niðurstöður eru í takt við erlendar rannsóknir sem sýna að stór hluti þeirra sem snýr aftur til vinnu eftir greiningu og meðferð krabbameina glímir við fylgikvilla sem hafa ...
Titel: |
Er ég jafnmikils virði og áður? Upplifun fólks á eigin líðan eftir krabbameinsgreiningu og í tengslum við að koma aftur til vinnu eftir greiningu ; Am I worth as much as before? People's experience and well-being following cancer diagnosis and when returning to work
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Erna Magnúsdóttir 1964- ; Háskólinn á Bifröst |
Link: | |
Zeitschrift: | ftskemman, 2018 |
Veröffentlichung: | 2018 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|