'Maður þurfti auðvitað að læra allt upp á nýtt' : breytingar á daglegu lífi í kjölfar mænuskaða ; “Of course you had to learn everything from the beginning.” Changes in daily life after spinal cord injury.
In: ftskemman, 2014
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Mænuskaði er afdrifaríkur atburður sem hefur veigamikil áhrif á líf fólks og breytir stefnu þess á augabragði. Færni til að takast á við daglegar athafnir er ekki sú sama og áður og þarf fólk að tileinka sér nýjar aðferðir við framkvæmd verka. Í kjölfarið fer umhverfið að skipta mun meira máli, hlutir, samfélagshópar, rými og viðfangsefni í samfélaginu ásamt efnahag, menningu og stjórnarfari eru allt þættir sem ýmist ýta undir eða draga úr þátttöku fólks með mænuskaða. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna upplifun fólks, sem hlotið hefur mænuskaða, af þeim breytingum sem verða á þátttöku í iðju, við skaðann og hvernig þeir brugðust við því. Eftirfarandi spurningar voru settar fram: (1) Hvaða breytingar upplifa einstaklingar á daglegu lífi í kjölfar mænuskaða? og (2) Hvernig takast þeir á við breytingarnar? Til að svara spurningunum varð eigindleg viðtalsrannsókn fyrir valinu og notast var við viðtalsramma Iðjusögu sem er matstæki byggt á Líkaninu um iðju mannsins (MOHO), en sú hugmyndafræði stýrði rannsókninni. Auglýst var eftir þátttakendum meðal félagsmanna Samtaka endurhæfðra mænuskaddaðra (SEM) og gerðust sex félagsmenn þátttakendur í rannsókninni. Viðtöl voru tekin við fjóra karlmenn og tvær konur, á aldrinum 24-50 ára, sem höfðu alskaða frá hryggjarlið C6 eða neðar og slösuðust fyrir a.m.k. þremur árum. Viðtölin voru hljóðrituð og afrituð orðrétt og síðan þemagreind. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að ráðstöfun tíma og orku var breytt og þörf var á nýjum aðferðum til að takast á við dagleg verk vegna skertrar færni. Hlutverk þátttakenda tóku líka breytingum þar sem viðfangsefni sumra hlutverka þurfti að aðlaga að breyttri færni og öðrum gátu þeir ekki lengur gegnt vegna þess að þeir réðu ekki við þau. Þá tóku sumir að sér ný hlutverk s.s. að berjast fyrir réttindamálum fatlaðra. Ýmsir umhverfisþættir höfðu áhrif á þátttöku viðmælenda í daglegu lífi og ýttu ýmist undir eða takmörkuðu hana. Mikilvægt var fyrir þátttakendur að fá stuðning og hvatningu frá fjölskyldum og vinum en há þrep, þröng .
Titel: |
'Maður þurfti auðvitað að læra allt upp á nýtt' : breytingar á daglegu lífi í kjölfar mænuskaða ; “Of course you had to learn everything from the beginning.” Changes in daily life after spinal cord injury.
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Nína Jensen 1982- ; Þórunn Sif Héðinsdóttir 1990- ; Háskólinn á Akureyri |
Link: | |
Zeitschrift: | ftskemman, 2014 |
Veröffentlichung: | 2014 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|