Viðskiptaliprun til að efla alþjóðaviðskipti: Áhrif viðskiptaliprunarsamkomulagsins á þróunarlönd og vanþróaðari ríki heims
2018
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Viðskiptaliprun er ætlað að greiða veginn fyrir auknum alþjóðaviðskiptum með því að einfalda, samræma, og minnka kostnaðinn við alþjóðaviðskipti. Viðskiptaliprun hefur verið Alþjóðaviðskiptastofnuninni og aðildarlöndum hennar hugfólgin lengi. Það endurspeglast í þeirri staðreynd að samkomulagið um viðskiptaliprun er fyrsta fjölhliða samkomulagið sem Alþjóðaviðskiptastofnunin hefur gert. Í þessari ritgerð verður samkomulaginu gerð skil og mögulegum áhrifum þess á þróunarlönd og vanþróaðri ríki. Hamlanir, líkt og hár tíma- og viðskiptakostnaður, standa oft í vegi fyrir því að þjóðir geti stundað alþjóðaviðskipti og notið ávinnings þeirra. Samkomulaginu er ætlað að takast á við sumar þessara hamlana en hætt er við því að þessi lönd verði skilin útundan í alþjóðaviðskiptum. Það er athugunarvert í ljósi þess að þróun og aukin umsvif viðskipta haldast oft í hendur en auk þess er efling þessara landa nauðsynleg til þess að hleypta auknu lífi í alþjóðaviðskipti en þau stöðnuðu á eftirhrunsárunum eftir öran vöxt á árunum 2000-2008. Viðskiptaliprun gæti reynst lykillinn að því að hleypa lífi í alþjóðaviðskipti á ný í ljósi þess að tollar eru lágir og mörg viðskiptasamkomulög í gildi. Að mestu leyti var notast við ritrýnd rannsóknarverkefni í þessari ritgerð en auk þess var stuðst við skýrslur og vefsíður alþjóðlegra stofnanna auk virtra tímarita. Niðurstöður þessarar ritgerðar gefa til kynna að viðskiptaliprunarsamkomulagið bjóði upp á töluverða möguleika fyrir umbætur í viðskiptaháttum þróunarlanda en þrátt fyrir það er ljóst að erfitt verður fyrir sum þessara landa að innleiða ákvæði samkomulagsins.
Titel: |
Viðskiptaliprun til að efla alþjóðaviðskipti: Áhrif viðskiptaliprunarsamkomulagsins á þróunarlönd og vanþróaðari ríki heims
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Snær Snæbjörnsson 1993- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2018 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|