Áhrifamáttur tónlistar : músíkþerapía með einhverfum börnum
2013
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Þetta verkefni er 10 einingar til B.A. prófs í þroskaþjálfafræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Vinnan við verkefnið hófst í janúar 2013 og lauk á vormánuðum. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að skoða gildi tónlistar sem meðferðarform fyrir einstaklinga með einhverfu. Sjónum er sérstaklega beint að músíkþerapíu og því hvernig hún er notuð í starfi með einhverfum börnum. Einnig verður skoðað hvernig músíkþerapía samræmist Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (2007-a). Ritgerðin byggir m.a. á þátttökuathugun sem framkvæmd var á vormisseri 2013 með músíkþerapista og einhverfum börnum. Lærdómurinn sem draga má af þeirri athugun er sá að tónlist getur verið gagnleg og þá sérstaklega í þeim tilgangi að fá einhverf börn til að tjá sig og líðan sína. Þrátt fyrir að músíkþerapía sé sérstök fræðigrein þá getur tónlist verið gagnleg í starfi þroskaþjálfa. Tónlist er stór þáttur í lífi okkar allra. Tónlistin er ,,tungumál sem allir skilja” og er skiljanleg milli þjóða og einstaklinga. Tónlistin sameinar fólk í takti og tónum.
Titel: |
Áhrifamáttur tónlistar : músíkþerapía með einhverfum börnum
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Rakel Pálsdóttir 1988- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2013 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|