„Kjarni málsins“ : þróunaráætlun um heiltæka nálgun til umbóta í grunnskólum á sunnanverðum Vestfjörðum ; „The Essential Matter“ : enhancement plan for systemic improvement for elementary schools in southern part of Westfjords
2019
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Markmiðið með þessu verkefni er að setja fram þróunaráætlun um heiltæka nálgun að umbótum í þeim tilgangi að bæta námsárangur nemenda í grunnskólum. Kveikjan að þessu verkefni kom til af áhuga mínum á að bæta námsárangur nemenda í þeim landshluta sem ég bý í. Ítrekað hef ég heyrt í fréttum og lesið í skýrslum, um það leyti sem einkunnir samræmdra könnunarprófa hafa verið birtar, að Vestfirðir séu meðal þeirra landshluta sem hafa lægstu meðaleinkunnina. Það sama má segja um PISA- rannsóknina en samkvæmt niðurstöðum þeirra prófa sem tengjast henni eru grunnskólar á Vestfjörðum í hópi þeirra sem eru með lægstu stigin. Segja má að verkefnið sem þessi ritgerð fjallar um sé tvíþætt: annars vegar er um að ræða fræðilega umfjöllun um árangursríkt skólastarf þar sem faglegt lærdómssamfélag er kynnt til sögunnar og sett í forgrunn; hins vegar er sett fram þróunaráætlun fyrir grunnskóla. Áætlunin byggist á hugmyndum um skólann sem lærdómssamfélag og ráðleggingum fræðimanna um leiðir til að styrkja það. Þróunaráætlunin er heiltæk (e. systemic improvement) vegna þess að markvissum aðferðum er beitt til að ná til allra stiga kerfisins, það er sveitarfélaga, skóla, kennara, nemenda og foreldra. Ég byggi verkefnið mitt á handbók Cowan, Joyner og Beckwith (2012) sem ber titilinn Getting serious about the system: A fieldbook for district and school leaders. Þar að auki fylgja áætluninni þýdd og staðfærð gögn og sniðmát sem hjálpa til við innleiðingarferlið. Það er trú mín að áætlun sem þessi nýtist til að bæta árangur nemenda í þeim skólum sem á þurfa að halda. Ég hef reynt að hafa áætlunina hagnýta og skýra, setta upp í töfluformi til einföldunar. ; The objective of this project is to put forth a development plan for an integral approach in educational improvement with the purpose of boosting academic outcomes among elementary school students. The motivation for this project developed as a result of my desire to improve educational outcomes of students in the rural area of Iceland where I currently reside. I have frequently ...
Titel: |
„Kjarni málsins“ : þróunaráætlun um heiltæka nálgun til umbóta í grunnskólum á sunnanverðum Vestfjörðum ; „The Essential Matter“ : enhancement plan for systemic improvement for elementary schools in southern part of Westfjords
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Ásdís Snót Guðmundsdóttir 1975- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2019 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|