„Það sem ekki varð“. Barnsmissir; Upplifun og reynsla af stuðningi og þjónustu
In: ftskemman, 2017
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í reynslu foreldra sem misst hafa börn af slysförum undir 18 ára aldri til að varpa ljósi á hvernig stuðningur og íhlutun frá fagaðila hafi staðið þeim til boða og hvort þörf sé á frekari stuðningi. Lagt var upp með að fanga einnig upplifun þeirra af félagslegum stuðningi og hvernig félagsráðgjafar geti komið að vinnu með foreldrum og fjölskyldum þeirra þegar slík áföll verða. Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegri rannsóknaraðferð með þeim hætti að tekin voru sex einstaklingsviðtöl við þrjár mæður og þrjá feður á aldrinum 39 til 54 ára. Viðmælendur eiga það allir sameiginlegt að hafa misst barn á aldrinum 6 til 17 ára af slysförum. Viðtölin voru tekin á haustmánuðum, í september og október 2017. Niðurstöður leiddu í ljós að við barnsmissi glíma foreldrar við alvarlega sálfélagslega erfiðleika. Þeir birtast til dæmis í kvíða, þunglyndi, svefntruflunum og sjálfsmorðshugsunum. Þegar barn deyr hefur það víðtæk áhrif á foreldra þess, þar sem ýmis flækjustig koma upp. Fyrri rannsóknir sýna að á meðan foreldrar eru að aðlagast breyttu lífi hafa þeir einnig áhyggjur af eftirlifandi börnum og hjónabandi sínu þar sem það á við. Rannsóknir erlendis frá hafa leitt í ljós að foreldrar upplifa ekki nægilegan stuðning frá heilbrigðisstarfsmönnum, fjölskyldu og vinum. Foreldrar sem missa börn skyndilega eru viðkvæmur hópur. Skiptir íhlutun heilbrigðisstarfsmanna verulegu máli á meðan þeir aðlagast breyttu lífi. Niðurstöður úr þessari rannsókn samræmast rannsóknum sem gerðar hafa verið erlendis. Lykilorð: Barnsmissir, áföll, sorgarferli, íhlutun, úrvinnsla, félagsráðgjöf. ; The main objective of this study was to gain insight into parental experiences following the loss of a child under the age of eighteen due to accident, and to shed light on whether and how support and intervention from professional could be helpful throughout the griefing process. Furthermore, the researcher tried to capture the parent‘s experience of social support and in what way social workers can aid and assist .
Titel: |
„Það sem ekki varð“. Barnsmissir; Upplifun og reynsla af stuðningi og þjónustu
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Hrönn Ásgeirsdóttir 1963- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Zeitschrift: | ftskemman, 2017 |
Veröffentlichung: | 2017 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|