Íþróttaiðkun ungmenna : hvers vegna skiptir stuðningur foreldra máli?
2019
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Foreldrar geta verið miklir áhrifavaldar í lífi barna sinna, geta með orðum sínum og gjörðum haft töluvert um það að segja hvort þau iðki íþróttir eða ekki. Mikilvægi hreyfingar fyrir börn og unglinga er ótvírætt þar sem sýnt hefur verið fram á margþætta heilsufarslega ávinninga sem henni fylgja. Íþróttir sem eru iðkaðar innan skipulagðra íþróttafélaga, sérstaklega hópíþróttir, eru taldar hafa í för með sér ávinning umfram aðra hreyfingu vegna þeirra góðu félagsmótandi reglna og gilda sem þar eru við líði. Þó svo að íþróttaiðkun ungmenna hafi aukist undanfarin ár og flest sveitarfélög niðurgreiði slíka ástundun er enn stór hópur sem ekki tekur þátt í íþróttastarfi eða hefur hætt iðkun sinni á unglinsárum. Í þessu lokaverkefni verður leitast við að svara rannsóknarspurningunni: Íþróttir ungmenna: hvers vegna skiptir stuðningur foreldra máli? Til þess að svara þeirri spurningu verður kannað hvaða stuðningur er mikilvægastur frá foreldrum, hvaða áhrif hann hefur í tengslum við íþróttaiðkun ungmenna og hvaða ávinning slíkur stuðningur getur fært þeim. Notast var við eigindlega aðferðafræði og tekin hálf-opin viðtöl við þrjú ungmenni á aldrinum 14 -17 ára sem öll stunda boltaíþróttir með íþróttafélagi á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að stuðningur í formi aksturs á æfingar og hvatning skiptu mögulega sköpum varðandi það að þátttakendur höfðu ekki hætt iðkun sinni á einhverjum tímapunkti. Einnig kom í ljós að stuðningur í formi hróss hafði jákvæð áhrif á frammistöðu í leikjum. Með þessum stuðningi stuðluðu foreldrar þannig að því að ungmennin þeirra öðluðust aukið sjálfstraust, höfðu eignast breiðara tengslanet í formi vináttu og kunningsskapar, lifi heilbrigðara lífi og haldist frá öllu því sem fellur undir áhættuhegðun af hvaða tagi sem er. Lykilhugtök: Íþróttaiðkun, börn, unglingar, foreldrar, forvörn, áhættuhegðun, sjálfstraust. ; Parents can have a significant influence on the lives of their children. They can have a considerable say, either with words or actions, in wether their ...
Titel: |
Íþróttaiðkun ungmenna : hvers vegna skiptir stuðningur foreldra máli?
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Ragnhildur Þórarinsdóttir 1971- ; Háskólinn á Akureyri |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2019 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|