Kynáhugi : fræðsluefni fyrir starfsmenn og þjónustunotendur skammtímaúrræða
2023
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Gegnum tíðina hefur fatlað fólk verið minnihlutahópur í samfélaginu og utangátta vegna fáfræði og mismununar. Ákveðin sýn og hugsun hefur lengi verið viðloðandi gagnvart fötluðu fólki og ímynd þess. Þessi sýn og hugsunarháttur í garð þessa minnihlutahóps hefur verið með neikvæðum hætti í gegnum aldirnar en í nútímanum hefur átt sér stað vitundarvakning á sumum sviðum vegna réttindabaráttu fatlaðs fólks. Þegar kemur að kynverund, kynáhuga og tilhugalífi fatlaðs fólks virðist sem samfélagið sé ekki jafn staðfast í úrbótum, eins og varðandi endurbætt aðgengi. Það eru nokkrar algengar mýtur í garð fatlaðs fólks varðandi kynverund þess, eins og að þau séu kynlausar verur, eilíf börn eða með stjórnlausa kynhvöt. Í þessu lokaverkefni verður því sjónum beint að þessari mismunun og fáfræði sem þarf að uppræta. Sem starfsmenn á skammtímadvölum höfum við, höfundar, vitneskju um skort á fræðsluefni sem varðar kynverund fatlaðs fólks. Höfundum finnst vera bersýnilegur skortur á ráðgjöf og fræðslu fyrir starfsfólk vinnustaða sem skilgreinir rétt vinnubrögð í kringum kynáhuga þjónustunotenda. Í lokaverkefninu verður einblínt á að koma á framfæri fræðsluefni sem getur bætt vitneskju starfsmanna, þjónustunotenda, aðstandenda og vinnustaða. Verkefnið verður skipt upp í greinargerð og fræðslubæklinga. Markmið þessa lokaverkefnis er að betrumbæta aðstæður starfsmanna og þjónustunotenda þeirra á vinnustöðum sem og í daglegu lífi. Til þess að skapa betra og faglegra umhverfi ásamt því að opna fyrir þetta umræðuefni sem er að fatlað fólk er kynverur eins og allir aðrir.
Titel: |
Kynáhugi : fræðsluefni fyrir starfsmenn og þjónustunotendur skammtímaúrræða
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Silja Líf Einvarðsdóttir 1995- ; Patrycja Rutkowska 1998- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2023 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|