Breytingastjórnun : viðbrögð og afleiðingar Covid-19 hjá Ríkisútvarpinu ohf.
2021
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Aðstæður okkar allra breyttust þegar COVID-19 faraldurinn reið yfir heimsbyggðina. Fólk varð hrætt, óöruggt og það var engin undantekning með starfsfólk sem starfar við framleiðslu á sjónvarps- og útvarpsefni. Andlega hlið landans er mikilvægt hagsmunamál og þar varð Ríkisútvarpið að stíga inn og leggja sitt af mörkum. Við gagnaöflun tók höfundur viðtöl við stjórnendur og starfsmenn stofnunarinnar um skipulag og undirbúning fyrir breytingar sem þurfti að gera á starfsemi Ríkisútvarpsins. Niðurstöður rannsóknarinnar eru lokaðar almenningi og því er útdráttur ritgerðarinnar ekki birtur í heild sinni. ; Þessi ritgerð fjallar um áskoranir sem stjórnendur Ríkisútvarpsins stóðu frammi fyrir þegar krónuveiran ógnaði allri heimsbyggðinni. Tekið er fyrir hugtakið breytingastjórnun sem skilgreint er sem skipulögð nálgun til þess að gera breytingar á skipulagsheildum í fyrirtækjum. Kenningar í breytingastjórnun auðvelda stjórnendum og starfsfólki að greina breytingaþörfina og gera nauðsynlegar breytingar á starfsemi fyrirtækis. Rannsóknarspurningin sem leitað verður svara við er: „Hverjir voru mikilvægustu þættirnir sem stjórnendur RÚV þurftu að hafa í huga, í því óvissuástandi sem varð til vegna COVID-19?“ Tekin voru viðtöl við stjórnendur sem tóku þátt í breytingum á allri starfsemi Ríkisútvarpsins. Verkefni þeirra var að halda órofnum rekstri allra miðla þrátt fyrir fjöldatakmarkanir og aðrar sóttvarnarreglur. Fjallað er um starfsemi RÚV til þess að útskýra hvaða vandamálum stjórnendur stóðu frammi fyrir. Á sama tíma og sóttvarnarreglur voru hertar og venjuleg starfsemi gat ekki haldið áfram var sett aukin krafa frá samfélaginu að Ríkisútvarpið myndi koma til móts við almenning. Það var gert með aukinni dagskrá til að bregðast við breytingum á daglegu lífi fólks. Einnig var stuðst við rannsókn sem var gerð meðal starfsmanna í miðri fyrstu bylgju. Sú rannsókn sýndi fram á stuðning við stjórnendur og ánægju með þær aðgerðir sem farið var í til þess að halda starfsemi miðlana órofinni. Fræðilegi kaflinn fjallar um 8 þrepa ...
Titel: |
Breytingastjórnun : viðbrögð og afleiðingar Covid-19 hjá Ríkisútvarpinu ohf.
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Gísli Berg Guðlaugsson 1983- ; Háskólinn á Bifröst |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2021 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|