Áhrif málþroskaröskunar á líf unglinga
2019
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Með málþroskaröskun er átt við þegar einstaklingar fylgja ekki aldursbundnum viðmiðum í málþroska. Málþroskaröskun hefur verið bendluð við ýmsa erfiðleika sem m.a. varða árangur í námi og félagslegan ávinning. Unglingsár eru oft talin viðkvæmt tímabil í lífi einstaklinga m.a. vegna þeirra miklu þroskabreytinga sem eiga sér stað á þeim tíma. Markmiðið með þessu verkefni er að skoða hvort málþroskaröskun geti haft áhrif á líf einstaklinga á tímabili unglingsára og ef svo er, með hvaða hætti. Fjallað verður um helstu einkenni málþroskaröskunar og skoðað hvort og hvernig hún hafi áhrif á hina ýmsu þætti sem skipta miklu máli í lífi unglinga, m.a. námshæfni, félagslega færni og andlega líðan. Í ljós kom að áhrifin geta haft mismikil áhrif og veltur það á ýmsum breytum eins og hversu mikil röskunin er, hvort unglingurinn hafi sterkt bakland o.s.frv. Stuðningur og íhlutanir frá fagaðilum, m.a. talmeinafræðingum skiptir miklu máli og getur haft áhrif á að unglingum farnist betur í félagslegum aðstæðum. Betri samskiptahættir geta einnig leitt til ýmissa annarra jákvæðra þátta í lífi unglinga, m.a. að sjálfsmat þeirra eykst, kvíði minnkar og námsfærni styrkist. Efni ritgerðarinnar varpar ljósi á þau miklu áhrif sem málþroskaröskun getur haft á líf unglinga og sýnir jafnframt fram á mikilvægi þess að áhersla sé lögð á íhlutanir frá fagaðilum fyrir þennan hóp.
Titel: |
Áhrif málþroskaröskunar á líf unglinga
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Herdís Rútsdóttir 1991- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2019 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|