„Ég hef alltaf verið að fikra mig áfram hvernig ég á að eignast vini og svona en ég hef aldrei eignast vini“ : rannsókn á félagslegri þátttöku unglinga með hreyfifrávik
Iðjuþjálfafélag Íslands, 2008
Online
academicJournal
Zugriff:
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open ; Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna félagslega þáttöku unglinga með hreyfifrávik og skoða hvaða þættir skipta þá mestu máli í daglegu lífi. Notuð var eigindleg rannsóknaraðferð en hún gefur þáttakendum tækifæri á að tjá eigin upplifun og reynslu. Um var að ræða 12 unglinga á aldrinum 15–17 ára sem greindir höfðu verið með hreyfiþroskaröskun með eða án ADHD (Att ention Deficit/Hyperactivity Disorder – ADHD). Niðurst öður leiddu í ljós að þátttakendur skiptust í tvo nær jafnstóra hópa hvað varðar félagslega þáttöku. Annars vegar hóp unglinga sem gekk vel félagslega og tóku þeir frekar þátt í tómstundaiðju. Þeir voru með nokkuð gott sjálfstraust og sýndu töluvert frumkvæði í samskiptum. Hins vegar voru félagslega verr staddir unglingar sem nefndu að kvíði, feimni og frumkvæðisleysi kæmi í veg fyrir að þeir tækju þátt að sama skapi og jafnaldrar þeirra. Það kom ekki fram að hreyfifrávik háðu unglingunum í daglegu lífi, að minnsta kosti virtust þeir ekki upplifa þau sem hindrun. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að gefa þurfi félagslegri þáttöku aukið vægi, finna leiðir til að efla félagsfærni barna og hvetja þau til aukinnar tómstundaiðkunar.
Titel: |
„Ég hef alltaf verið að fikra mig áfram hvernig ég á að eignast vini og svona en ég hef aldrei eignast vini“ : rannsókn á félagslegri þátttöku unglinga með hreyfifrávik
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Gústavsdóttir, Gerður ; Guðjónsdóttir, Helga ; Sigurbjörnsdóttir, Valrós |
Link: | |
Veröffentlichung: | Iðjuþjálfafélag Íslands, 2008 |
Medientyp: | academicJournal |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|