Upplýsingatækni með augum nemenda : framtíðarmynd
2022
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Í ljósi mikillar þróunar sem hefur orðið í samfélaginu á undanförnum árum í upplýsingatækni var ákveðið að upplýsingatækni í lífi barna væri viðfangsefnið í þessu verkefni. Markmiðið var að skoða hvernig upplýsingatækni birtist nemendum í skóla og daglegu lífi, og velta fyrir sér hvaða þætti má leggja áherslur á í menntun til þess að hún nýtist nemendum út í lífið. Unnið var út frá rannsóknarspurningunum: hvar og hvernig birtist upplýsingatækni í daglegu lífi nemenda? og hvaða þætti má leggja áherslur á í menntun til þess að hún nýtist nemendum út í lífið? Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við sex nemendur á öllum stigum grunnskólans. Niðurstöður rannsókninnar byggja á fræðilegri rannsókn og greiningu á efni viðtala við nemendur til að átta sig á hvaða skoðanir nemendur hafi á upplýsingatækninni, hvort þeir átti sig á því hvar upplýsingatækni sé að finna í samfélaginu og hvernig hún getur nýst þeim út í lífið þegar horft er til framtíðar. Þegar dregnar eru saman heildarniðurstöður rannsóknarinnar í fáum orðum má ætla að upplýsingatækni sé allt í kringum börn. Hvort sem það er inni á heimilium þeirra, skólum, búðum, farartækjum, til þess að greiða fyrir vörur eða öðrum stöðum. Hugtakið er kunnugt flestum og tengja börn það við tölvur eða tækni. Upplýsingatæknin birtist börnum snemma á lífsleiðinni og er tækjakostur sem þau hafa yfir að ráða eða aðgang að almennt góður. Kennsla virðist fara fram með misjöfnum hætti en flestir virðast átta sig á því að upplýsingatækni megi nota í hvaða námsgrein sem er. Horfa þarf til samþættingar til þess að efla upplýsingatækni nemenda þar sem hefðbundnir tölvutímar eru ekki að vekja áhuga þeirra. Áhuga á greininni væri hægt að auka hjá nemendum með því að notast við tölvuleiki, forritun eða aðra tækni samhliða samþættingu annara námsgreina.
Titel: |
Upplýsingatækni með augum nemenda : framtíðarmynd
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Svanhildur Ævarr Valgarðsdóttir 1986- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2022 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|