Kynvarpið : kynfræðslu hlaðvarpsþættir um kynlíf og fötlun
2022
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Þættirnir eru aðgengilegir á Spotify, til þess að hlusta er hægt að afrita hlekkina hér fyrir neðan. ; Þrátt fyrir að öll ungmenni eigi að fá viðeigandi kynfræðslu sýna rannsóknir að fötluð ungmenni fá minni kynfræðslu heldur en önnur ungmenni en einnig að þau séu líklegri til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Þetta verkefni er tvískipt, annars vegar eru hlaðvarpsþættir (e. podcast) um kynlíf og fötlun sem bera heitið Kynvarpið og hins vegar fræðileg skýrsla um innihald þáttanna, framkvæmd þeirra, mikilvægi og fræðilegan bakgrunn þeirra hugtaka sem birtast í þáttunum. Hlaðvarpið er ætlað foreldrum fatlaðra ungmenna og ungmenna með þroskahömlun, aðstandendum þeirra, starfsfólki ýmissa stétta og svo almenningi. Kynvarpið samanstendur af átta þáttum, upphafs þætti með höfundum verkefnis, sex þáttum með viðmælendum og lokaþætti þar sem leiðbeinandi spyr höfunda út í verkefnið. Markmið þáttana er að fræða hlustendur og opna á umræður um margskonar mál sem varða kynlíf, kynverund, kynréttindi og kynfræðslu fatlaðs fólks og fólks með þroskahömlun á Íslandi. Í viðtölunum kom í ljós að fáfræði og feimni ríkir í kringum málefnið og margar mýtur sem stangast á við hvor aðra eru á lofti. Því teljum við mikilvægt að opna á umræðuna og búa til vettvang þar sem foreldrar og aðstandendur geta leitað sér fræðslu með von um að þau verði betur í stakk búin til að styðja við ungmennin og þannig stuðlað að þeirra kynheilbrigði og vellíðan. Umfjöllunarefni þáttanna er viðkvæmt og virðist jafnvel koma fólki úr jafnvægi. Því er mjög brýnt að búa til aðgengilegan og yfirvegaðan vettvang þar sem fólk getur sótt sér fræðslu, hlustað á sérfræðinga ræða málin frá ólíkum sjónarhornum og séð að kynlíf er eðlilegur hluti af lífi fatlaðs fólks.